Loeb með nauma forustu

Sébastien Loeb. stækka

Sébastien Loeb. Reuters

Frakkinn Sébastien Loeb, sem hefur tryggt sér heimsmeistaratitilinn í rallakstri sjöunda árið í röð, heldur naumri forustu í Bretlandsrallinu, sem nú stendur yfir í Wales. Er Loeb með 5,8 sekúndna forskot á Norðmanninn Petter Solberg eftir tvo keppnisdaga af þremur.

Í næstu sætum eru Finnarnir Mikko Hirvonen og Jari-Matti Latvala, Spánverjinn Dani Sordo, Norðmaðurinn Henning Solberg, Englendingurinn Matthew Wilson og Finninn Kimi Räikkönen. 


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is