Loeb sigraði í Wales
Frakinn Sébastien Loeb vann Bretlandsrallið í Wales í dag og innsiglaði þar með sjöunda heimsmeistaratitil sinn í rallakstri í röð. Loeb tók forustuna strax í upphafi keppninnar í Wales á sunnudag og hélt henni til loka.
Í öðru sæti varð Norðmaðurinn Petter Solberg, 19,1 sekúndu á eftir Loeb en báðir aka þeir Citroën C4. Þriðji varð Finninn Jari-Matti Latvala, 1,35 mínútum á eftir Loeb og fjórði Mikko Hirvonen frá Finnlandi, 18 sekúndum á eftir landa sínum en báðir aka þeir Ford Focus. Fimmti varð Spánverjinn Dani Sordo, sjötti Norðmaðurinn Henning Solberg, sjöundi Englendingurinn Matthew Wilson og í áttunda sæti Finninn Kimi Räikkönen.
Loeb hafði mikla yfirburði á keppnistímabili rallökumanna. Hann vann 8 mót af 13 og endaði með 276 stig. Latvala, sem kom næstur, 174 stig og Frakkinn Sébastien Ogier fékk 167 stig.






