Østberg með forustu í Svíþjóð

Finninn Kimi Räikkönen, fyrrverandi heimsmeistari í kappakstri, stefnir einnig á heimsmeistaratitil í rallakstri. stækka

Finninn Kimi Räikkönen, fyrrverandi heimsmeistari í kappakstri, stefnir einnig á heimsmeistaratitil í rallakstri. Reuters

Norðmaðurinn Mats Østberg er með forustu eftir fyrsta keppnisdaginn í Svíþjóðarrallinu, fyrstu rallkeppninni á heimsmeistaramótaröðinni í ár.

Østberg, sem ekur Ford Focus, er  með 14,8 sekúndna forskot á Finnann Mikka Hirvonen, sem einnig ekur ford, og 57,4 sekúndna forskot á landa sinn, Petter Solberg, sem ekur Citroën.

Í næstu sætum eru Finninn Jari-Matti Latvala, Norðmaðurinn Henning Solberg og Frakkinn Sébastien Ogier. Frakkinn Sébastien Loeb, sem er sexfaldur heimsmeistari í rallakstri, byrjaði ekki vel og er í 9. sæti, nærri 2½ mínútu á eftir Østberg.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is