Hirvonen með forustu

Mikko Hirvonen. stækka

Mikko Hirvonen. Reuters

Finnski ökuþórinn Mikko Hirvonen hefur náð forustu í Svíþjóðarrallinu, fyrstu rallkeppninni á heimsmeistaramótaröðinni í ár.

Hirvonen er með 6,2 sekúndna forskot á Norðmanninn Mats  Østberg og 7,8 sekúndna forskot á Finnann Jari-Matti Latvala.

Í næstu sætum eru Norðmaðurinn Petter Solberg og Frakkarnir Sébastien Ogier og Sébastien Loeb.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is