Loeb sigraði í Mexíkó

Sébastien Loeb. stækka

Sébastien Loeb. Reuters

Frakkinn Sébastien Loeb vann Mexíkórallið í dag en hann stefnir að því að vinna sjöunda heimsmeistaratitilinn í rallakstri í röð.

Loeb náði forustunni í keppninni í Mexíkó á þriðja keppnisdeginum í dag þegar landi hans og liðsfélagi, Sébastien Ogier, sem hafði verið í fararbroddi frá fyrstu sérleið, missti bíl sinn út af veginum og féll úr keppni.

Í öðru sæti í dag var Finninn Mikka Hirvonen, sem vann fyrstu keppni ársins í Svíþjóð í febrúar. Hirvonen var 1,38 mínútum á eftir Loeb. Í þriðja sæti var Finninn Jari-Matti Latvala, 2,24 mínútum á eftir Frakkanum.

Í næstu sætum voru þrír Norðmenn, Petter Solberg Mads Østberg og Hennig Solberg.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is