Ogier vann í Portúgal

Mikko Hirvonen er með forustu í stigakeppni ökumanna. stækka

Mikko Hirvonen er með forustu í stigakeppni ökumanna. Reuters

Frakkinn Sébastien Ogier vann Portúgalsrallið í dag, annað árið í röð. 

Ogier, sem ekur Citroën DS3, endaði 31,8 sekúndum á undan landa sínum og liðsfélaga, Sébastien Loeb, sem stefnir að sjöunda heimsmeistaratitli sínum í röð í rallakstri.  

„Ég er afar ánægður, þetta var fullkomin helgi, bíllinn var fullkominn og  Julien Ingrassia (aðstoðarökumaður) var fullkominn," sagði Ogier.

Finninn Jari-Matti Latvala, sem ekur Ford Fiesta, var þriðji og liðsfélagi hans, Finninn Mikko Hirvonen, var fjórði. Bretinn Matthew Wilson var fimmti, Norðmaðurinn Petter Solberg sjötti og Finninn Kimi Räikkönen sjöundi. 

Eftir þrjú mót á mótaröðinni í ralli eru Hirvonen og Loeb með forustu í stigakeppni ökumanna með 58 stig, Latvala er með 48, Ogier 41 og Petter Solberg 31.   

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is