Ogier með forustu í Jórdaníu

Sébasten Ogier. stækka

Sébasten Ogier. Reuters

Frakkinn Sébastien Ogier er með forustu í Jórdaníurallinu, sem fer fram nú í vikulokin. Eftir tvo fyrstu keppnisdagana hefur Ogier, sem ekur Citroën DS3, 31,6 sekúndna forskot á landa sinn og liðsfélaga Sébastien Loeb.

Þriðji er Finninn Jari-Matti Latvala, 1,5 sekúndum á eftir Loeb, og Norðmaðurinn Petter Solberg er 2,2 sekúndum á eftir Latvala.

Í næstu sætum eru Finnarnir Mikka Horvonen og Kimi Rïkkönen.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is