Ogier vann í Jórdaníu

Sébastien Ogier. stækka

Sébastien Ogier. Reuters

Frakkinn Sébastien Ogier fór með sigur af hólmi í Jórdaníurallinu í dag. Ogier kom í mark 0,2 sekúndum á undan Finnanum Jari-Matti Latvala. Er þetta minnsti munur, sem um getur í heimsmeistarakeppninni í rallakstri.

Ogier hafði forustu í upphafi dagsins en Latvala ók vel í dag og hafði náð 0,5 sekúndna forskoti fyrir síðustu sérleiðina en Frakkinn komst fram úr honum á lokametrunum.

Í þriðja sæti varð Frakkinn Sébastien Loeb, 27,7 sekúndum á eftir Ogier.  Finninn Mikko Hirvoenen, Bretinn Matthew Wilson og Finninn Kimo Räikkönen voru næstir. 

Þetta er annar sigur Ogiers í röð í mótaröðinni í ralli í ár. Loeb hefur hins vegar forustu   í stigakeppni ökumanna eftir fjögur mót með 74 stig. Hirvonen er með 72 stig, Ogier með 69 og Latvala 66. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is