Loeb sigraði á Sardiniu

Sébastien Loeb. stækka

Sébastien Loeb. LEHTIKUVA

Frakkinn Sébastien Loeb fór með sigur af hólmi í ítalska rallinu á Sardiniu í dag. Var þetta 63. sigur hans í heimsmeistarakeppni í rallakstri og hann jók forskot sitt í stigakeppni ökumanna en Loeb stefnir að áttunda heimsmeistaratitlinum í röð. 

Finninn Mikko Hirvonen varð annar og Norðmaðurinn Petter Solberg þriðji.    Frakkinnn Sébastien Ogier varð fjórði en hann missti af verðlaunasæti þegar hann lenti á steini og braut fjaðrabúnað bíls síns á 17. sérleið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is