Loeb sigraði í Argentínu

Sébastien Ogier. stækka

Sébastien Ogier. Reuters

Frakkinn Sébastien Loeb vann Argentínurallið í dag eftir æsispennandi keppni.

Þegar lokadagurinn rann upp var Loeb nærri 48 sekúndum á eftir landa sínum og liðsfélaga, Sébastien Ogier. En Ogier velti bíl sínum á fyrstu sérleið dagsins, tapaði við það rúmum 20 sekúndum. Vökvastýri bíls hans bilaði og því tapaði Ogier einnig talsverðum tíma þeim þremur sérleiðum sem eftir voru og endaði loks í þriðja sæti.

Finninn Mikko Hirvonen varð annar, 2,4 sekúndum á eftir Loeb. Norðmaðurinn Petter Solberg varð fjórði og landi hans, Mads Østberg, varð fimmti. 

Loeb jók forskot sitt í stigakeppni ökumanna og stefnir nú að sjöunda heimsmeistaratitli sínum í röð. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is