Klausturskeppnin haldin um hvítasunnuna


Stærsta vélhjólaaksturskeppni landsins verður haldin að Kirkjubæjarklaustri um hvítasunnuhelgina. Keppnin átti upprunalega að vera í lok maí, en  var frestað vegna gossins í Grímsvötnum.

Keppnin verður með sama sniði og undanfarin 9 ár og munu rúmlega 400 keppendur leiða saman vélfáka sína í sex klukkustunda þolakstri  innan landarmerkja Ásgarðs. Er keppt í mörgum mismunandi flokkum.

Keppnin hefst kl. 12 sunnudaginn 12. júní og er aðgangur ókeypis.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is