Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| mbl
| 18.6.2011
| 19:54
Loeb með forustu í Grikklandi
Franski heimsmeistarinn í rallakstri, Sébastien Loeb, er með forustu eftir tvo fyrstu keppnisdagana í Akropólisrallinu í Grikklandi. Loeb, sem stefnir að sjöunda heimsmeistaratitli sínum í röð, náði forustunni á 13. sérleið, þeirri síðustu í dag.
Sébastien Ogier, landi og liðsfélagi Loebs, er í 2. sæti, 2,2 sekúndum á eftir Loeb. Norðmaðurinn Petter Solberg er þriðji, 20,9 sekúndum á eftir Loeb og Finninn Mikko Hirvonen er í 4. sæti, 1,5 sekúndum á eftir Solberg.
Í næstu sætum eru Norðmaðurinn Henning Solberg, Bretinn Matthew Wilson og Finninn Kimi Räikkönen.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






