Ogier vann í Grikklandi

Sébastien Ogier. stækka

Sébastien Ogier. Reuters

Frakkinn Sébastien Ogier fór með sigur af hólmi í Akropólisrallinu í Grikklandi í dag en landi hans og liðsfélagi, Sébastien Loeb, varð annar 10,5 sekúndum á eftir. Finninn Mikko Hirvonen varð þriðji, 13,5 sekúndum á eftir Ogier.

Loeb hefur samt talsvert forskot í stigakeppni ökumanna og bendir allt til þess að hann hreppi sjöunda heimsmeistaratitil sinn á sjö árum. Hirvonen er í 2. sæti og Ogier í því þriðja.

Norðmaðurinn Petter Solberg, sem hafði forustu eftir fyrsta keppnisdaginn, endaði í 4. sæti og Henning bróðir hans í því fimmta. Í sjötta sæti varð Englendingurinn Matthew Wilson og Finninn Kimi Räikkönen varð sjöundi.

Daniel Elena, aðstoðarökumaður, og Sébastien Loeb fagna einum af mörgum sigrum.

Daniel Elena, aðstoðarökumaður, og Sébastien Loeb fagna einum af mörgum sigrum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is