Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| mbl
| 29.7.2011
| 19:01
| Uppfært
21:43
Frakkar berjast um sigurinn í Finnlandi
Frönsku liðsfélagarnir Sébastien Loeb og Sébastien Ogier virðast ætla að berjast um sigurinn í Finnlandsrallinu sem fer fram í nágrenni Jyväskylä.
Þegar tveimur keppnisdögum er lokið af þremur, hefur Loeb, sem stefnir að sjöunda heimsmeistaratitli sínum í röð, 1,5 sekúndna forskot á Ogier en þeir aka báðir Citroën.
Í þriðja sæti er Finninn Jari-Matti Latvala, 2,6 sekúndum á eftir Loeb. Í næstu sætum eru Norðmennirnir Petter Solberg og Mads Østberg og Finninn Mikko Hirvonen.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






