Ogier vann í Þýskalandi

Sébastien Ogier. stækka

Sébastien Ogier. Reuters

Frakkinn Sébastien Ogier fór með sigur af hólmi í Þýskalandsrallinu, sem lauk í dag. Landi hans og liðsfélagi, Sébastien Loeb, varð annar og Spánverjinn Dani Sordo þriðji.

Þetta var sjötti sigur Ogiers í rallkeppni og 78. sigur Citroën-liðsins, sem er met.  

Í næstu sætum voru Finninn Mikko Hirvonen, Norðmaðurinn Petter Solberg, Bretinn Kris Meeke og Finninn Kimi Räikkönen.

Loeb stefnir óðfluga í átt að áttunda heimsmeistaratitli sínum í röð. Hann er með 192 stig, Ogier 167 stig og Hirvonen er með 156 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is