Hirvonen með forustu
Finninn Mikko Hirvonen hefur forustu í Ástralíurallinu eftir fyrsta keppnisdagin af þremur.
Bæði Sébastian Loeb, heimsmeistari, og Sébastien Ogier, liðsfélagi hans, eru úr leik í rallinu eftir að hafa lent í óhöppum en þeir eru í tveimur efstu sætum stigakeppni ökumanna.
Hirvonen er með 7 sekúnda forskot á landa sinn, Jari-Matti Latvala. Norsku bræðurnir Petter og Henning Solberg eru í næstu sætum og Bretinn Matthew Wilson er í sjötta sæti.
Áður en rallið hófst var mikið talað um ósamkomulag Frakkanna tveggja og hvort Ogier tækist að minna bilið milli þeirra tveggja í stigakeppni ökumanna. Loeb var fljótastur á fyrstu sérleiðinni en á annarri sérleið velti hann bíl sínum og Ogier ók á tré á þeirri fjórðu.
Mikil rigning hefur verið á svæðinu og því hafa akstursskilyrði verið afar slæm. Hirvonen missti bíl sinn út af á sjöttu sérleið en tókst að komast á veginn aftur án þess að skemma bílinn.






