Latvala með forustu í Ástralíu

Jari-Matti Latvala. stækka

Jari-Matti Latvala. Reuters

Finninn Jari-Matti Latvala hefur náð forustunni í ástralska rallinu eftir tvo keppnisdaga af þremur. Latvala er með 22,7 sekúndna forskot á landa sinn og liðsfélaga, Mikko Hirvopen og 59,5 sekúndna forskot á Norðmanninn Petter Solberg.

Í næstu sætum eru Bretinn Matthew Wilson, Khalid Al Quassimi frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Evgení Novikov frá Rússlandi.

Latvala, sem ekur Ford Fiesta, vann fjórar sérleiðir í dag en hann hóf keppnina í öðru sæti. 

Frakkarnir Sébastien Loeb og Sébastien Ogier, sem eru fremstir í stigakeppni ökumanna, lentu báðir í óhöppum á fyrsta keppnisdegi. Þeir hófu keppni að nýju í morgun og unnu sex sérleiðir til samans en eiga enga möguleika á stigum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is