Hirvonen sigraði í Ástralíu
Finninn Mikko Hirvonen fór með sigur af hólmi í ástralska rallinu, sem lauk í morgun. Jari-Matti Latvala, landi og liðsfélagi Hirvonens, var með forustuna fyrir tvær síðustu sérleiðirnar en hægði á sér á þeirri næstsíðustu svo Hirvonen kæmist fyrstur í mark.
Latvala varð annar, 14,7 sekúndum á eftir Hirvonen. Norðmaðurinn Petter Solberg varð þriðji og Bretinn Matthew Wilson fjórði. Frakkarnir Sébastien Loeb og Sébastien Ogier enduðu í 10. og 11. sæti en þeim hlekktist báðum á í upphafi keppninnar á föstudag.
Þessi úrslit þýða,að Hirvonen á enn möguleika á að vinna heimsmeistaratitilinn í rallakstri en hann er 15 stigum á eftir Loeb þegar þrjár keppnir eru eftir á árinu.
„Því miður missti Jari-Matti af möguleikunum á titlinum fyrir nokkrum mánuðum og hann er nú að aðstoða mig," sagði Hirvonen eftir keppnina. Latvala staðfesti þetta og sagði að þeir hefðu komist að þeirri niðurstöðu að Hirvonen ætti meiri möguleika á titlinum en hann.
Staðan í stigakeppni ökumanna er eftirfarandi: Loeb 196 stig, Hirvonen 181, Ogier 167, Latvala 116, Petter Solberg 110.






