Loeb úr leik í Frakklandsrallinu
Franski heimsmeistarinn í rallakstri, Sébastien Loeb, er úr leik í Frakklandsrallinu sem hófst í morgun, hann varð að hætta keppni vegna vélarbilunar. Landi hans og liðsfélagi hjá Citroën, Sébastien Ogier, er nú með forustu í keppninni.
Loeb, sem hefur orðið heimsmeistari síðustu sjö ár, var fljótastur á fyrstu sérleiðinni og var með forustu eftir tvær fyrstu sérleiðirnar en varð að hætta á þeirri þriðju.
Finnarnir Mikko Hirvonen og Jari-Matti Latvala, sem aka fyrir Ford, lentu báðir út af veginum á þriðju sérleið en náðu að halda keppninni áfram og eru í 6. og 7. sæti. Landi þeirra, Kimi Räikkönen, féll úr leik í upphitun fyrir þriðju sérleið.
Hirvonen á nú möguleika á að komast upp fyrir Loeb í stigakeppni ársins en 15 stigum munar á þeim.
Ogier gæti einnig komist upp að hlið Loebs með sigri í Frakklandi.






