Ogier sigraði í Frakklandi

Sébastien Ogier á Citroënbíl sínum í rallinu í dag. stækka

Sébastien Ogier á Citroënbíl sínum í rallinu í dag.

Frakkinn Sébastien Ogier sigraði í Frakklandsrallinu, sem lauk í dag. Eftir keppnina í dag munar aðeins þremur stigum á Ogier og landa hans og liðsfélaga, Sébastien Loeb í stigakeppni ökumanna til heimsmeistaratitils en Loeb féll úr leik á fyrsta keppnisdegi á föstudag.

Ogier, sem ekur Citroën DS3, endaði 6 sekúndum á undan Spánverjanum Dani Sordo, sem ekur Mini Cooper. Norðmaðurinn Petter Solberg, sem ekur Citroën DS3, varð þriðji mínútu á eftir Ogier. 

Þegar tveimur keppnum er ólokið á keppnistímabilinu er Loeb með 196 stig en Ogier og Finninn Mikko Hirvonen, sem ekur Ford Fiesta, hafa 193 stig. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is