Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| AFP
| 23.10.2011
| 13:22
| Uppfært
18:35
Loeb vann Katalóníurallið
Frakkinn Sébastien Loeb fór með sigur af hólmi í Katalóníurallinu, sem lauk á Spáni í dag. Var þetta 67. sigur Loebs á rallmóti og allt bendir til þess að hann hreppi áttunda heimsmeistaratitil sinn í röð.
Loeb var rúmum tveimur mínútum á undan Finnunum Mikko Hirvonen og Jari-Matti Latvala, sem aka Ford Focus. Í næstu sætum voru Spánverjinn Dani Sordo, Bretinn Kris Meeke, Norðmaðurinn Mads Östberg, Rússinn Evgení Novikov og Norðmaðurinn Henning Solberg.
Ein keppni er eftir á keppnistímabilinu og verður hún í Wales í nóvember. Fyrir hana er Loeb með átta stiga forskot á Hirvonen en Citroën hefur þegar tryggt sér heimsmeistaratitil bílasmiða.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






