8. titillinn blasir við Loeb

Sébastien Loeb í Wales. stækka

Sébastien Loeb í Wales. Reuters

Áttundi heimsmeistaratitillinn í röð í rallakstri blasir nú við Frakkanum Sébastien Loeb en helsti keppinautur hans, Finninn Mikko Hirvonen, er úr leik í breska rallinu, sem nú fer fram í Wales. Er það síðasta keppni ársins í heimsmeistaramótaröðinni.

Hirvonen átt möguleika á heimsmeistaratitlinum með sigri í Wales og hafði raunar náð forustunni þegar sex sérleiðum var lokið. En á sjöundu sérleiðinni í dag lenti Hirvonen á trjágrein og skemmdi vatnskassann í Ford Fiesta-bíl sínum.

„Þetta er búið," sagði Hirvonen og gat ekki leynt vonbrigðum sínum.

Loeb er með forustu í rallinu í Wales eftir sjö sérleiðir og hefur 17,7 sekúndna forskot á Finnann Jari-Matti Latvala.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is