Latvala vann í Wales en Loeb er heimsmeistari

Sébastien Loeb á tveimur hjólum á Citroën C4 bíl sínum í Wales. stækka

Sébastien Loeb á tveimur hjólum á Citroën C4 bíl sínum í Wales. Reuters

Finninn Jari-Matti Latvala sigraði í breska rallinu, sem lauk í Wales í dag. Frakkinn Sébastien Loeb fagnaði hins vegar áttunda heimsmeistaratitli sínum í röð þótt honum tækist ekki að ljúka keppni í dag.

Ljóst varð þegar á föstudag, að Loeb myndi tryggja sér heimsmeistaratitilinn í Wales en þá féll Finninn Mikko Hirvonen, sá eini sem ógnaði Loeb, úr keppni.

Loeb, sem er 37 ára, varð síðan sjálfur að hætta keppni í morgun þegar honum hlekktist á milli 18. og 19. sérleiðarinnar. Hann var þá í 2. sæti eftir Latvala.

Norðmaðurinn Mads Østberg varð í 2. sæti í Wales, 3,43 mínútum á eftir Latvala. Norðmaðurinn Henning Solberg varð þriðji.

Jari-Matti Latvala á Ford Fiesta bíl sínum í Wales.

Jari-Matti Latvala á Ford Fiesta bíl sínum í Wales. Reuters

Engum öðrum rallökumanni hefur tekist að vinna heimsmeistaramótið í rallakstri jafnoft og Loeb og hann hefur einnig sigrað í flestum einstökum keppnum, 103.

Loeb endaði með 222 stig í stigakeppni ökumanna. Hirvonen endaði með 214. Frakkinn Sébastien Ogier varð þriðji og Latvala fjórði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is