Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| mbl
| 16.11.2011
| 17:03
Hirvonen og Loeb saman hjá Citroën
Finnski rallökumaðurinn Mikko Hirvonen, sem undanfarin ár hefur ekið fyrir Ford í heimsmeistaramótinu í rallakstri, mun aka fyrir Citroën á næsta ári og leysa Frakkann Sébastien Ogier af hólmi.
Fyrir hjá Citroën er Frakkinn Sébastien Loeb, sem um helgina vann sinn áttunda heimsmeistaratitil í röð en Hirvonen hefur nú síðustu ár helst veitt Loeb keppni um heimsmeistaratitilinn og varð í öðru sæti nú. Vitað er, að samskipti Loebs og Ogiers hafa verið stirð á þessu ári.
Jarmo Lehtinen verður áfram aðstoðarökumaður Hirvonens. Daniel Elena verður aðstoðarökumaður Loebs eins og hann hefur verið undanfarin ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






