Dakar-rallið hafið

Katarbúinn Nasser Al-Attiyah, sem sigraði í rallinu í fyrra, við rásmarkið í dag. Hann ók ... stækka

Katarbúinn Nasser Al-Attiyah, sem sigraði í rallinu í fyrra, við rásmarkið í dag. Hann ók VW bíl í fyrra en er nú á Hummer. Reuters

Dakar-rallið svonefnda hófst í Argentínu í dag en keppnin var flutt frá Norður-Afríku til Suður-Ameríku eftir að skipuleggjendur neyddust til að aflýsa keppninni árið 2008 vegna hryðjuverkahættu.

Í bílaflokki var Leoníd Novitzkíj frá Rússlandi fljótastur, Pólverjinn Krzysztof Holowczyc kom næstur og þriðji varð Frakkinn Stephane Peterhansel.

Francisco Lopez vann fyrstu dagleiðina í mótorhjólaflokki en Spánverjinn Marc Coma, sem sigraði í fyrra, og Argentínumaðurinn Javier Pizzolito komu næstir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is