Peterhansel

Stéphane Peterhansel og Jean-Paul Cottret, aðstoðarökumaður hans, óku Mini Monster í Dakar-rallinu. stækka

Stéphane Peterhansel og Jean-Paul Cottret, aðstoðarökumaður hans, óku Mini Monster í Dakar-rallinu. Reuters

Frakkinn Stéphane Peterhansel fór með sigur af hólmi í Dakar-rallinu, sem lauk í Lima í Perú í dag. Er þetta í 10. skipti sem Peterhansel vinnur þetta rall, sem áður fór fram í Norður-Afríku en hefur verið haldið í Suður-Ameríku undanfarin ár.

Frakkinn Cyril Despres vann mótorhjólaflokkinn í fjórða skipti.

Síðasta dagleiðin var stutt, eða 29 kílómetrar. Báðir Frakkarnir höfðu nánast tryggt sér sigurinn í keppninni í gær og gátu því farið gætilega í dag.

Frakkarnir Peterhansel og Despres fagna sigri í dag.

Frakkarnir Peterhansel og Despres fagna sigri í dag. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is