Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| mbl
| 18.1.2012
| 17:13
Loeb með forustu í fyrsta ralli ársins
Frakkinn Sébastien Loeb, sem unnið hefur heimsmeistaramótið í rallakstri sjö undanfarin ár, hefur forustu eftir fyrsta keppnisdaginn í Monte Carlo-rallinu í Mónakó, fyrsta ralli ársins.
Loeb, sem ekur Citroën, var fljótastur á þremur af fjórum sérleiðum dagsins. Spánverjinn Daniel Sordo er í 2. sæti, rúmri mínútu á eftir Frakkanum, og Norðmaðurinn Petter Solberg er í 3. sæti, skammt á eftir Sordo.
Finninn Jari-Matti Latvala var með forustu eftir þrjár fyrstu sérleiðirnar í dag en lenti síðan í óhappi á fjórðu sérleið og varð að hætta keppni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






