FH og ÍA skildu jöfn

Tryggvi Guðmundsson skoraði mark FH-inga.
Tryggvi Guðmundsson skoraði mark FH-inga. Brynjar Gauti

Íslandsmeistarar FH og ÍA gerðu 1:1 jafntefli í fyrsta leik 10. umferðar í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í dag. Tryggvi Guðmundsson kom FH-ingum yfir með marki úr vítaspyrnu á 8. mínútu, hans sjötta mark á leiktíðinni, en Ellert Jón Björnsson jafnaði metin fyrir Skagamenn með þrumuskoti stundarfjórðungi fyrir leikslok.

FH hefur 23 stig í efsta sæti en Valur, sem á leik til góða hefur 18 stig en Valsmenn mæta Frömurum á mánudaginn. Skagamenn, sem léku sinn fjórða leik án taps, eru í fjórða sætinu með 15 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert