KR og Fram fá erlenda leikmenn

Frá viðureign Fram og Fylkis um síðustu helgi.
Frá viðureign Fram og Fylkis um síðustu helgi. mbl.is/Golli

Reykjavíkurfélögin KR og Fram bættu í dag erlendum leikmönnum í sína hópa en þá kom Portúgalinn Jordao Diogo til liðs við KR og Englendingurinn Joe Tillen til liðs við Fram.

Þeir hafa báðir verið til reynslu hjá liðunum að undanförnu en báðir koma þeir frá enskum utandeildaliðum. Þeir eru komnir með leikheimild og geta spilað með annað kvöld, Diogo með KR gegn Fjölni og Tillen með Fram gegn HK. Báðir leikmennirnir spila á vinstri vængnum, sem kantmenn eða bakverðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert