Hannah hættur hjá Fylki

David Hannah, til vinstri, í baráttu við Skagamanninn Þórð Guðjónsson.
David Hannah, til vinstri, í baráttu við Skagamanninn Þórð Guðjónsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Skoski varnarmaðurinn David Hannah sem verið hefur í herbúðum Fylkis hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Árbæjarliðið að því er fram kemur í tilkynningu á vef Fylkis í dag.

Í tilkynningunni segir; ,,Meistaraflokksráð Fylkis og David Hannah hafa komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að best sé að slíta samstarfinu. David lék mikilvægt hlutverk í hjarta varnarinnar á síðasta tímabili og var hlekkur í sterkri varnarkeðju liðsins. Fylkismenn þakka David hans framlag í leik og starfi Fylkis sl. ár og óska honum velfarnaðar í næstu verkefnum sínum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert