Pálmi Rafn sá um Fram

Valsmenn taka á móti liði Fram í miklum Reykjavíkurslag.
Valsmenn taka á móti liði Fram í miklum Reykjavíkurslag. mbl.is/Þorvaldur

Valur vann sannfærandi sigur á Fram á Vodafone-vellinum í kvöld, 2:0. Pálmi Rafn Pálmason skoraði bæði mörkin á tveggja mínútna kafla þegar um 15 mínútur voru eftir af leiknum. Fylgst var með gangi mála í textalýsingu hér á mbl.is.

Með sigrinum eru Valsmenn komnir upp fyrir Fram með 16 stig í fjórða sæti, en Framarar eru með stigi minna. 

Byrjunarlið Vals: Kjartan Sturluson - Birkir Már Sævarsson, Atli Sveinn Þórarinsson, Barry Smith, Rene Carlsen - Rasmus Hansen, Sigurbjörn Hreiðarsson, Pálmi Rafn Pálmason, Bjarni Ólafur Eiríksson - Guðmundur Benediktsson, Helgi Sigurðsson.

Varamenn: Gunnar Einarsson, Hafþór Ægir Vilhjálmsson, Einar Marteinsson, Baldur Aðalsteinsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Albert Brynjar Ingason, Ágúst Bjarni Garðarsson.

Byrjunarlið Fram: Hannes Þór Halldórsson - Jón Orri Ólafsson, Auðun Helgason, Reynir Leósson, Samuel Tillen -  Paul McShane, Ingvar Þór Ólason, Heiðar Geir Júlíusson, Halldór Hermann Jónsson, Ívar Björnsson - Hjálmar Þórarinsson.

Varamenn: Hlynur Atli Magnússon, Örn Kató Hauksson, Grímur Björn Grímsson, Joseph Tillen, Guðmundur Magnússon, Kristinn Ingi Halldórsson, Ögmundur Kristinsson. 

Valur 2:0 Fram opna loka
90. mín. Leik lokið Leiknum er lokið með sanngjörnum sigri Vals.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert