Pétur og Ólafur í eins leiks bann

Ólafur Páll Snorrason missir af leik Fjölnis gegn Grindavík.
Ólafur Páll Snorrason missir af leik Fjölnis gegn Grindavík. mbl.is/hag

Pétur Hafliði Marteinsson úr KR og Ólafur Páll Snorrason úr Fjölni voru í dag úrskurðaðir í eins leiks bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ.

Ólafur verður í banni þegar Fjölnir mætir Grindavík á fimmtudagskvöldið og Pétur tekur bannið út þegar KR tekur á móti FH á sunnudaginn kemur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert