Guðjón jafnaði fyrir KR í blálokin

Keflvíkingar mæta í Vesturbæinn sem topplið deildarinnar.
Keflvíkingar mæta í Vesturbæinn sem topplið deildarinnar. mbl.is/Víkurfréttir

KR og Keflavík gerðu 2:2 jafntefli í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld og tryggði Guðjón Baldvinsson KR stigið með marki alveg í lokin.

Keflavík er þá áfram með tveggja stiga forskot á FH, er með 37 stig gegn 35 hjá Hafnfirðingunum sem gerðu 3:3 jafntefli við Fjölni.

Björgólfur Takefusa kom KR yfir, Guðmundur Steinarsson og Jón Gunnar Eysteinsson svöruðu fyrir Keflavík en Guðjón Baldvinsson bjargaði KR-ingum í uppbótartíma leiksins.

Byrjunarlið KR: Stefán Logi Magnússon, Skúli Jón Friðgeirsson, Pétur Hafliði Marteinsson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Guðmundur Reynir Gunnarsson,  Óskar Örn Hauksson, Viktor Bjrki Arnarsson, Jónas Guðni Sævasson, Gunnar Örn Jónsson, Björgólfur Takefusa, Guðjón Baldursson.

Varamenn eru: Kristján Finnbogason, Gunnlaugur Jónsson, Ásgeir Örn Ólafsson, Guðmundur Pétursson, Davíð Birgisson, Guðmundur Atli Steinþórsson, Jordao Diogo.

Byrjunarlið Keflavíkur: Ómar Jóhannsson, Guðjón Árni Antoníusson, Kenneth Gustafsson, Hallgrímur Jónasson, Brynjar Guðmundsson, Patrik Redo, Hólmar Örn Rúnarsson, Hans Mathiesen, Jóhann B. Guðmundsson, Símun Samuelsen, Guðmundur Steinarsson.

Varamenn eru: Magnús Þormar, Nicolai Jörgensen, Jón Gunnar Eysteinsson, Magnús S. Þorsteinsson, Einar Orri Einarsson, Manús Þ. Matthíasson, Hörður Sveinsson.

KR 2:2 Keflavík opna loka
90. mín. Guðjón Baldvinsson (KR) skorar Guðjón átti góðan skalla eftir sendingu frá hægri.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert