Margrét Lára: Minn tími á Íslandi búinn

Margrét Lára á fleygiferð með boltann í leik með Val.
Margrét Lára á fleygiferð með boltann í leik með Val. hag / Haraldur Guðjónsson

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði þrennu fyrir Val gegn Fylki í Landsbankadeild kvenna á laugardaginn og þar með er ljóst að hún verður markadrottning deildarinnar eitt árið enn.

Margrét Lára, sem hefur gert 29 mörk í 17 leikjum í ár, sagði við Morgunblaðið eftir leikinn að hún væri farin að hugsa sér til hreyfings og hygðist fljótlega reyna fyrir sér erlendis.

„Ég einbeiti mér fyrst og fremst að Val í dag en held að minn tími á Íslandi sé að verða búinn og stefni á að fara utan í haust. Það gerist bara þegar það gerist og það eru spennandi tímar framundan. Umboðsmaður minn segir að stór lið úti í heimi hafi haft samband en ég hrindi því öllu frá mér fram yfir Íslandsmót og reyndar fram yfir árið, læt bara umboðsmanninn sjá um þetta,“ sagði Margrét Lára við Morgunblaðið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert