„Viljum enda sem efst“

Logi Ólafsson.
Logi Ólafsson. mbl.is/Brynjar Gauti

„Ég er kátur með okkar leik í dag. Þetta var sennilega einn besti leikur okkar í sumar, í það minnsta hvað sóknarleik varðar. Hins vegar var það leiðinlegasta við þennan leik að fá okkur þessi tvö mörk. En það er ekki hægt annað en að vera ánægður með hvernig sóknarleikur liðsins var í dag. Spilið um kantinn var mjög gott og flestar sóknir og hlaup upp völlinn. Okkar metnaður liggur auðvitað í því að lenda sem efst í deildinni. Þó við eigum möguleika á Evrópusæti með sigri í bikarkeppninni, viljum við auðvitað baktryggja það með því að hafna í 3. sæti í deildinni. Auk þess er það líka bara spurning um stolt að lenda sem efst í deildinni,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari KR eftir 5:2-sigur liðsins á Þrótti í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert