Ólafur hefur fullan hug á að halda áfram

Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks.
Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks. mbl.is/Haraldur Guðjónsson

„ÉG hef fullan hug á að halda áfram og ég veit ekki annað en það sé gagnkvæmur áhugi hjá forráðamönnum liðsins,“ sagði Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, í samtali við Morgunblaðið í gær en Blikarnir enduðu tímabilið í áttunda sæti Landsbankadeildarinnar eftir tap í síðustu fjórum leikjunum.

Ólafur gerði tveggja ára samning við Kópavogsliðið í fyrra en eins og jafnan er þá eru í honum endurskoðunarákvæði.

 „Við enduðum tímabilið ekki eins og við hefðum viljað en það er ekkert annað að gera en að spýta í lófana og byggja ofan á þá góðu hluti sem voru gerðir hjá okkur í sumar. Allir sérfræðingarnir sem eru þessa dagana að fella dóma yfir okkur verða okkur bara hvatning frekar en hitt,“ sagði Ólafur sem veitti mörgum ungum leikmönnum liðsins eldskírn í sumar og vöktu margir þeirra mikla athygli.

gummih@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert