Færri áhorfendur í fyrstu fimm umferðunum

Stuðningsmenn FH hafa mætt betur á völlinn í byrjun móts …
Stuðningsmenn FH hafa mætt betur á völlinn í byrjun móts en þeir gerðu í fyrra. mbl.is/hag

Áhorfendum á leikjum í úrvalsdeild karla í knattspyrnu hefur fækkað um 274 að meðaltali á leik, miðað við sama tíma og í fyrra. Vorið 2008 sáu 41.665 áhorfendur fyrstu 30 leiki deildarinnar en í ár eru þeir 33.441 á fyrstu 30 leikjunum.

Meðalaðsókn á leik í vor er samt yfir meðaltali síðasta árs í heild sinni. Núna hafa 1.115 manns að meðaltali mætt á hvern leik í deildinni en allt síðasta tímabil mættu að meðaltali 1.106 manns á hvern leik. Aðsóknin þá minnkaði því talsvert þegar leið á tímabilið.

Sex af þeim tíu liðum sem eru áfram í deildinni frá því í fyrra eru með betri meðalaðsókn nú en á síðasta tímabili og hjá FH hefur áhorfendum fjölgað um 200 manns að meðaltali á leik.

Sjá nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag þar sem fjallað er um aðsóknina, fimmta umferð úrvalsdeildarinnar er gerð upp og lið umferðarinnar valið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert