Marko lenti í vinnuslysi

Marko Valdimar Stefánsson í baráttu við Prince Rajcomar í leik …
Marko Valdimar Stefánsson í baráttu við Prince Rajcomar í leik Grindavíkur og KR. mbl.is/Hilmar Bragi

Marko Valdimar Stefánsson, varnarmaðurinn efnilegi í úrvalsdeildarliði Grindvíkinga , lenti í vinnuslysi í dag og svo getur farið að hann leiki ekkert meira með suðurnesjaliðinu á leiktíðinni.

Marko lenti með fótinn í sláttuvél og skarst  illa  þar sem hnífurinn lenti í tánum en hann var við vinnu á nýja tjaldsvæðinu í Grindavík.

Þetta er mikið áfall fyrir Grindvíkurliðið en Marko, sem er 19 ára gamall og sonur aðstoðarþjálfarans Milan Stefán Jankovic, hefur staðið sig virkilega vel en hann hefur leikið í miðvarðastöðunni í undanförnum leikjum og hefur komið við sögu í sjö af átta leikjum liðsins í Pepsi-deildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert