Tvö mörk Tryggva í sigri FH

Úr leik KR og FH. Guðmundur Sævarsson leikmaður FH og …
Úr leik KR og FH. Guðmundur Sævarsson leikmaður FH og Baldur Sigurðsson úr KR í skallaeinvígi. mbl.is/Golli

Íslandsmeistarar FH eru óstöðvandi í Pepsideild karla í knattspyrnu og í kvöld lögðu þeir Framara að velli á Laugardalsvelli, 2:0, með mörkum Tryggva Guðmundssonar sem kom inná sem varamaður á níundu mínútu. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

Tryggvi, sem verið hefur varamaður í síðustu leikjum FH, skoraði mörkin í upphafi seinni hálfleiks en FH-ingar fengu einnig urmul færa í fyrri hálfleik þar sem Hannes Þór Halldórsson átti góðan leik í marki Fram.

Leikurinn er hluti af 13. umferð en var flýtt vegna þátttöku liðanna í Evrópukeppni.

Ítarlega verður fjallað um leikinn í Morgunblaðinu í fyrramálið.

Byrjunarlið Fram: Hannes Þór Halldórsson - Daði Guðmundsson, Kristján Hauksson, Auðun Helgason, Samuel Tillen - Paul McShane , Ingvar Þór Ólason, Halldór Hermann Jónsson, Heiðar Geir Júlíusson - Almarr Ormarsson, Hjálmar Þórarinsson.

Varamenn: Ögmundur Kristinsson, Hlynur Atli Magnússon, Grímur Björn Grímsson, Ívar Björnsson, Jón Guðni Fjóluson, Jón Orri Ólafsson, Josep Tillen.

Byrjunarlið FH: Daði Lárusson - Guðmundur Sævarsson, Pétur Viðarsson,  Tommy Nielsen, Hjörtur Logi Valgarðsson - Davíð Þór Viðarsson, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Matthías Vilhjálmsson - Atli Viðar Björnsson, Alexander Söderlund, Atli Guðnason.

Varamenn: Gunnar Sigurðsson, Freyr Bjarnason, Tryggvi Guðmundsson, Matthías Guðmundsson, Hákon Atli Hallfreðsson, Björn Daníel Sverrisson, Viktor Örn Guðmundsson.

Staðan í Pepsideild karla.
Staðan í Pepsideild karla.
Fram 0:2 FH opna loka
90. mín. Leik lokið Sanngjarn sigur FH-inga í höfn.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert