Níundi sigur FH í röð, 3:0 í Eyjum
FH er komið með átta stiga forystu í úrvalsdeild karla í knattspyrnu, Pepsi-deildinni, eftir öruggan sigur á ÍBV, 3:0, á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld. Þetta var níundi sigur Íslandsmeistaranna í röð í deildinni.
Atli Viðar Björnsson, Matthías Vilhjálmsson og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson skoruðu fyrir FH og ekki bætti úr skák fyrir Eyjamenn að Gauti Þorvarðarson var rekinn af velli undir lok fyrri hálfleiks.
Lið ÍBV: Albert Sævarsson - Pétur Runólfsson, Andri Ólafsson, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Matt Garner - Tonny Mawejje, Ingi Rafn Ingibergsson, Yngvi Borgþórsson, Chris Clements - Gauti Þorvarðarson, Ajay Leitch-Smith.
Varamenn: Þórarinn Ingi Valdimarsson, Viðar Örn Kjartansson, Bjarni Rúnar Einarsson, Arnór Ólafsson, Augustine Nsumba, Elías Ingi Árnason, Elías Fannar Stefnisson.
Lið FH: Daði Lárusson - Guðmundur Sævarsson, Pétur Viðarsson, Tommy Nielsen, Hjörtur Logi Valgarðsson - Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Matthías Vilhjálmsson, Davíð Þór Viðarsson - Atli Guðnason, Atli Viðar Björnsson, Tryggvi Guðmundsson.
Varamenn: Freyr Bjarnason, Gunnar Sigurðsson, Matthías Guðmundsson, Hákon Atli Hallfreðsson, Björn Daníel Sverrisson, Brynjar Benediktsson, Viktor Örn Guðmundsson.






