Áskrifendum boðið á leik Fylkis og FH

Ólafur Stígsson spilar kveðjuleik sinn með Fylki á morgun.
Ólafur Stígsson spilar kveðjuleik sinn með Fylki á morgun. mbl.is/Eggert

Moggaklúbburinn býður nú áskrifendum Morgunblaðsins á völlinn í síðasta skiptið á þessu keppnistímabili. Nú býðst þeim að fara frítt á leik Fylkis og FH á Fylkisvelli klukkan 16 á morgun.

Allt sem áskrifendur þurfa að gera er að mæta í afgreiðslu Morgunblaðins í Hádegismóum 2 í dag, fyrir klukkan 18.00, og hafa meðferðis úrklippta auglýsingu um leikinn úr blaðinu í dag. Fyrir það fær viðkomandi tvo miða á leikinn á Fylkisvelli.

Fylkir og FH mætast í stærsta leik lokaumferðar deildarinnar en FH er nýkrýndur Íslandsmeistari og Fylkismenn eru búnir að tryggja sér þriðja sætið í deildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert