Viktor Bjarki samdi við KR til þriggja ára

Viktor Bjarki Arnarsson sækir að Finni Orra Margeirssyni. stækka

Viktor Bjarki Arnarsson sækir að Finni Orra Margeirssyni. mbl.is

„Við erum ánægðir með að hafa fengið Viktor Bjarka í okkar raðir. Hann lék vel með okkur sumarið 2008 og hann styrkir liðið okkar,“ sagði Rúnar Kristinsson yfirmaður knattspyrnumála hjá bikarmeistaraliði KR við mbl.is í kvöld. Viktor Bjarki Arnarsson samdi við KR til þriggja ára en hann lék með Nybergsund í Noregi á síðustu leiktíð.  

Viktor Bjarki lék 18 leiki með KR sumarið 2008 þar sem hann skoraði eitt mark en hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins af leikmönnum og þjálfurum haustið 2006 þegar  hann var leikmaður með Víkingi. Hann samdi við Lilleström haustið 2006 og var þar til ársins 2008 en KR-ingar fengu hann að láni sumarið 2008. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Mánudaginn 30. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Sunnudaginn 22. janúar

Laugardaginn 21. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar


finnur.is