Daði jafnaði á síðustu stundu

Daði Guðmundsson, til hægri, jafnaði fyrir Fram. stækka

Daði Guðmundsson, til hægri, jafnaði fyrir Fram. mbl.is/Ómar

Fylkir og Fram skildu jöfn, 3:3, í fjörugum leik í Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram í Egilshöllinni. Framarar jöfnuðu metin með tveimur mörkum undir lok leiksins.

Andrés Már Jóhannesson kom Fylki yfir en Almarr Ormarsson jafnaði fyrir Fram. Tómas Þorsteinsson og Albert B. Ingason bættu við mörkum fyrir Fylki, 3:1. Guðmundur Magnússon minnkaði muninn skömmu fyrir leikslok og Daði Guðmundsson jafnaði á síðustu mínútunni með skoti beint úr aukaspyrnu.

Fylkir og Fram eru þá bæði með 4 stig eftir 2 leiki. Fjölnir og Leiknir R. eru án stiga eftir einn leik hvort og leikur þeirra stendur nú yfir í Egilshöllinni. Tvö liðanna komast í undanúrslit mótsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Mánudaginn 30. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Sunnudaginn 22. janúar

Laugardaginn 21. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar


finnur.is