Alfreð fer ekki með Viking til La Manga
Alfreð Finnbogason framherji Breiðabliks og efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins á síðustu leiktíð fer ekki með norska úrvalsdeildarliðinu Viking í æfingaferð til La Manga á Spáni. Åge Hareide, þjálfari Viking, segir í viðtali við Aftenbladet í Stavanger að Alfreð sé ekki inni í myndinni hjá Viking.
„Ég hef ekki talað við Viking í nokkrar vikur og ég vona að tilboð þeirra standi mér til boða,“ segir Alfreð Finnbogason í viðtali við Aftenbladet en Þjóðverjinn Uwe Rösler var þjálfari liðsins á þeim tíma þegar Alfreð fór og æfði með Viking s.l. haust.
Frá þeim tíma hefur margt breyst og Hareide hefur ekki áhuga á að sjá íslenska framherjann sem skoraði 13 mörk á síðustu leiktíð.
Tveir íslenskir landsliðsmenn eru samningsbundnir Viking, Indriði Sigurðsson og Birkir Bjarnason.






