Jafntefli í meistaraslag á Akureyri

Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Þórs/KA sem gerði fyrra mark liðsins, sækir að Emblu Sigríði Grétarsdóttur. Katrín ... stækka

Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Þórs/KA sem gerði fyrra mark liðsins, sækir að Emblu Sigríði Grétarsdóttur. Katrín Jónsdóttir er við öllu búin. mbl.is/Skapti

Deildabikarmeistarar Þórs/KA og Íslands- og bikarmeistarar Vals gerðu jafntefli, 2:2, í kvöld þegar liðin mættust í deildabikar kvenna í knattspyrnu, Lengjubikarnum, í Boganum á Akureyri.

Mörkin komu öll í fyrri hálfleiknum þar sem Þór/KA náði tvívegis forystunni. Rakel Hönnudóttir og Danka Podovac voru þar að verki. Valskonur voru fljótar að jafna í bæði skiptin, fyrst Björk Gunnarsdóttir úr vítaspyrnu og síðan Dagný Brynjarsdóttir.

Liðin eru nú bæði með 4 stig eftir 2 leiki en í fyrstu umferð A-deildarinnar vann Þór/KA sigur á KR, 3:1, og Valur vann Stjörnuna, 4:0.

Leikskýrslan.

Staðan í A-deild.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is