Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 13.3.2010
| 19:36
| Uppfært
21:05
Ondo tryggði Grindavík sigur
Gilles Mbang Ondo tryggði Grindavík annan sigur liðsins í 1. riðli A-deildar Lengjubikarsins í knattspyrnu karla í Akraneshöllinni í dag, 3:2 gegn Þór.
Ondo skoraði sigurmarkið skömmu fyrir leikslok en aðeins nokkrum andartökum áður hafði Jóhann Helgason jafnað leikinn fyrir Grindavík sem fáeinum mínútum áður hafði misst Grétar Ólaf Hjartarson af leikvelli með rautt spjald.
Þorseinn Ingason og Kristján Steinn Magnússon skoruðu mörk Þórs sem komst í 2:1 og virtist eiga sigurinn vísan skömmu fyrir leikslok. Orri Freyr Hjaltalín skoraði fyrsta mark Grindavíkur.
Í sama riðli mættust Fylkir og Njarðvík í Egilshöllinni í fremur tilþrifalitlum leik sem endaði með markalausu jafntefli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






