Andri með þrennu gegn FH-ingum

Andri Fannar Stefánsson skoraði þrisvar hjá FH-ingum í dag. stækka

Andri Fannar Stefánsson skoraði þrisvar hjá FH-ingum í dag. mbl.is/Golli

Andri Fannar Stefánsson, 18 ára leikmaður KA, skoraði þrennu gegn Íslandsmeisturum FH í dag þegar liðin skildu jöfn í Boganum, 3:3. KA-menn voru samt manni færri í 70 mínútur, eftir að þjálfari liðsins, Dean Martin, var rekinn af velli fyrir að verja skot FH-inga með hendi á marklínu.

Andri kom KA yfir snemma en síðan kom rauða spjaldið á Dean og vítaspyrna í kjölfarið sem Gunnar Már Guðmundsson jafnaði úr fyrir FH. Pétur Viðarsson skoraði fyrir FH, 2:1, en Andri Fannar jafnaði, 2:2, fyrir hlé.

Atli Viðar Björnsson kom FH í 3:2 en tíu KA-menn gáfust ekki upp og Andri Fannar náði að jafna metin áður en yfir lauk.

FH tapaði þar með sínum fyrstu stigum og fékk á sig sín fyrstu mörk í 2. riðli A-deildar Lengjubikarsins en liðið er með 7 stig eftir þrjá leiki. KA-menn fengu hinsvegar sitt fyrsta stig í keppninni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Mánudaginn 30. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Sunnudaginn 22. janúar

Laugardaginn 21. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar


finnur.is