Keflavík með þrjú mörk, tvö rauð á Blika
Keflavík sigraði Breiðablik, 3:0, þegar liðin mættust í deildabikar karla í knattspyrnu, Lengjubikarnum, í Reykjaneshöllinni í kvöld.
Blikar töpuðu þar með sínum fyrstu stigum í 3. riðli A-deildar, en þeir eru með 12 stig eftir 5 leiki og enn efstir í riðlinum. Keflvíkingar eru komnir með 9 stig eftir 4 leiki. ÍBV er með 10 stig eftir 6 leiki og KR er með 9 stig eftir aðeins 3 leiki.
Fyrri hálfleikur var fjörugur en ekkert mark var skorað. Á 60. mínútu leiksins dró til tíðinda þegar Arnór Sveinn Aðalsteinsson úr Breiðabliki fékk rauða spjaldið fyrir að hrinda mótherja.
Keflvíkingar voru fljótir að nýta sér liðsmuninn því strax á næstu mínútu skoraði Magnús Þórir Matthíasson af stuttu færi, 1:0.
Enn fækkaði hjá Blikum á 74. mínútu þegar Elfar Freyr Helgason fékk sitt annað gula spjald og þar með það rauða.
Eftirleikurinn var auðveldur fyrir Keflvíkinga gegn níu Blikum. Ómar Karl Sigurðsson skoraði á 84. mínútu með fallegu skoti uppí vinstra markhornið eftir langt innkast, 2:0. Þetta var hans fyrsti leikur með Keflavík en Ómar kemur til liðsins frá MK í Noregi og spilaði áður með Haukum um árabil.
Í uppbótartíma skoraði síðan Magnús Þórir sitt annað mark eftir skyndisókn og sendingu Harðar Sveinssonar, 3:0.






