Kjartan með fernu og Atli með þrennu

Kjartan Henry Finnbogason skoraði fjögur mörk í kvöld. stækka

Kjartan Henry Finnbogason skoraði fjögur mörk í kvöld. www.kr.is

Kjartan Henry Finnbogason skoraði fjögur mörk fyrir KR í kvöld þegar liðið rótburstaði ÍR, 8:0, í deildabikar karla í knattspyrnu. Atli Guðnason skoraði þrennu fyrir FH sem vann stórsigur á Fjölni, 6:1.

Kjartan Henry skoraði þrjú af fyrstu fjórum mörkum KR, náði þrennunni í upphafi síðari hálfleiks og fernunni á 69. mínútu þegar hann kom KR í 6:0. Gunnar Kristjánsson skoraði tvö mörk og þeir Viktor Bjarki Arnarsson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson eitt hvor. KR hefur unnið alla fjóra leiki sína í keppninni.

Atli skoraði tvö fyrstu mörk FH gegn Fjölnis á fyrstu 13 mínútunum og kom síðan FH í 4:1 í byrjun síðari hálfleiks. Matthías Vilhjálmsson skoraði tvö mörk fyrir FH og Gunnar Már Guðmundsson gerði eitt gegn sínum gömlu félögum en Styrmir Árnason gerði mark Fjölnis.

Víkingur R. vann Leikni R., 1:0, á gervigrasvelli sínum í Víkinni. Helgi Sigurðsson skoraði sigurmarkið um miðjan síðari hálfleik.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is