Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 20.3.2010
| 11:02
Fylkir og KR skildu jöfn
Fylkir og KR gerðu jafntefli, 1:1, þegar liðin mættust í deildabikar kvenna, Lengjubikarnum á gervigrasvelli Fylkis í Árbænum í gærkvöld.
Katrín Ásbjörnsdóttir kom KR-ingum yfir eftir hálftíma leik en Íris Dóra Snorradóttir jafnaði fyrir Fylki 10 mínútum síðar. Þegar 20 mínútur voru eftir var Fjolla Shala hjá Fylki rekin af velli þegar hún fékk sitt annað gula spjald en KR-ingar náðu ekki að nýta sér liðsmuninn.
Fylkir er með 2 stig eftir 2 leiki í A-deildinni en KR-ingar fengu þarna sitt fyrsta stig í þremur leikjum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






